þriðjudagur, apríl 18, 2006

Vídjógláp

Ég heiti Hannes og ég er vídjófíkill. Í kuldanum hef ég leitt Gerði út í þessa vitleysu en með vorinu tek ég mér tak.

Við höfum verið heldur dugleg við að horfa á kvikmyndir síðustu vikurnar. Byrjuðum með áskrift hjá Netflix sem er DVD-leiga þar sem myndirnar eru sendar heim til þín í pósti. Sérhver notandi er með sitt svæði á heimasíðu Netflix þar sem hann getur valið myndir sem hann vill leigja og eru þær settar í röð sem má síðar breyta. Síðan sendir Netflix myndirnar í pósti, 1,2,3 eða fleiri (fer eftir tegund áskriftar) og þegar búið er að glápa á mynd er hægt að senda hana til baka í sama ófrímerkta umslagi og hún kom í. Um leið og Netflix fær myndina aftur sendir hún næstu mynd sem var valin. Við borgum 10 dollara á mánuði og megum vera með eina mynd í senn, svo með góðu móti getum við horft á 4 myndir í hverjum mánuði sem er miklu meira en nóg fyrir okkur. Við horfum annars ekkert á bandarískt sjónvarp, sem er fullt af rusli og auglýsingum, svo ég fæ aðeins minna samviskubit fyrir vikið.

Það gefst ekki mikill tími þessa dagana til þess að horfa á kvikmyndir svo við segjum örugglega upp áskriftinni fljótlega. Erum áskrifendur að The New Yorker og fengum ókeypis áskrift af Times svo það verður líka að gefast einhver tími til þess að lesa um heimsmálin.

Við erum orðnir miklir Hitchcock aðdáendur og mælum eindregið með "Rear Window" og "Dial M for Murder".

4 Athugasemdir:

Blogger Helga sagði...

ég var í svona áskrift hjá framköllunarfyrirtæki í Svíþjóð. Þá fékk ég senda ókeypis filmu og setti hana svo í umslag þegar var búið að taka á hana myndir. Fékk svo ljósmyndirnar tilbaka í pósti, (borgaði skít og kanill), og fékk ókeypis filmu með... tók myndir af hverju andartaki á tímabili. Hafði bara ekki undan!

11:32 AM  
Blogger Hanley Gubrick sagði...

Mér líður nákvæmlega þannig með þessar DVD myndir!

Vil helst horfa á myndina strax og senda hana til baka samdægurs til þess að fá þá næstu í röðinni senda.

-HH

12:27 PM  
Blogger Halli sagði...

þið væruð örugglega góð í bréfskák ef þetta er svona stimulerandi fyrir ykkur..

8:21 AM  
Blogger Hanley Gubrick sagði...

Hverjir stunda bréfskák á tímum netvæðingar?

Með auknum hraða á netinu gæti verið stutt í að þessi DVD póstþjónusta verði liðin tíð og þetta fari bara allt saman í gegnum netið (við sjáum nú þegar fyrstu merki þessa). Allir verða komnir með ljósleiðara upp að bæjardyrum og bensínvídjóleigur úti á landi selja bara bensín, sælgæti og grillvökva.

-HH

11:52 AM  

Sendu inn athugasemd

<< Veffang