laugardagur, apríl 08, 2006

Loksins

Dagurinn byrjaði vel vegna þess að loksins var knattspyrnuleik SOPS ekki frestað. Lékum í glampandi sólskini og þægilegum hita (ca. 20 gráður) og lauk leiknum með 2-1 sigri okkar á liði sem samanstóð mestmegnis af Könum. Reyndar missti ég illilega stjórn á skapi mínu rétt fyrir leikslok eftir að mótherji hafði stjakað við mér og síðar Guillaume að tilefnislausu. Guillaume gekk upp að honum og ýtti við honum og ég kom strax á eftir og ýtti einnig eitthvað á hann... kannski bara aðeins of fast, því þessi tæplega tveggja metra jaxl datt niður á jörðina og rúllaði. Síðan las ég yfir honum skammir á ensku og notaði víst ósmekklega orðið um karlkyns afkvæmi tíkar.

Ég hef ekki fundið fyrir jafn mikilli reiði síðan einhvern tímann í grunnskóla og sá nú mikið eftir þessu að leik loknum og baðst því innilega afsökunar. Samherjar mínir hafa líklegast aldrei séð mig missa stjórn á skapi mínu á þennan hátt og voru furðu lostnir. Sama gildir um fyrirliða mótherja okkar -ágætis félagi minn- sem kom til mín og spurði hvað hefði eiginlega gerst því þetta var algjörlega útúr karakter. Hann játaði líka að þessi maður sem ég hrinti væri þekktur fyrir fruntaskap og lenti iðulega í leiðindum í leikjum. En mér finnst það engin afsökun fyrir þessari hegðun minni. Það er spurning um að fara í jóga í næstu viku.

(Guillaume er líka einstakt ljúfmenni með ótrúlega stjórn á skapi sínu, svo það er heldur óvanalegt að sjá hann reiðast á þennan hátt.)

Kannski er bara ágætt að sleppa dýrinu lausu af og til svo lengi sem afleiðingarnar eru ekki of slæmar. Þetta sannar þó að ég hef enn skap og sver mig í móðurætt mína.

-Hannes

2 Athugasemdir:

Blogger vignir freyr sagði...

Þarna kannast ég við kauða!! ;) ég hef ekki misst stjórnar á skapi mínu svo árum skiptir.. :P er maður svona bældur eða bara svona vel upp alinn?? :)

10:45 AM  
Anonymous Hannes sagði...

Kannski hefur þetta eitthvað með nýju klippinguna mína að gera. Fólk hefur sagt að ég lít ekki út fyrir að vera eins saklaus áður.

3:54 PM  

Sendu inn athugasemd

<< Veffang