Hægri mjöðm, vinstri, snúa, upp, niður,snúa,snúa...
Hvenær tekur maður þátt í danssýningu ef maður gerir það ekki þegar maður er 26 ára?
Í janúar síðastliðinn hóf ég að nema magadans. Ekki í frásögu færandi nema hvað að nú um helgina föstudag, laugardag og sunnudag mun ég taka þátt í danssýningu þar sem snilldartaktar mínir verða opinberaðir. Hef fjárfest í dýrum búningi með öllu tilheyrandi eyrnalokkum, hárskrauti, peningabelti, risastóru pilsi, gullbróderuðum topp o.s.frv. Þetta er náttúrulega bara fyndið. Já ég mun dansa, ásamt 15 öðrum konum, þrjá dansa. Sígunadans, slæðudans og síðan klassískan magadans. Er ekki enn búin að gera það upp við mig hvort mér finnst þetta skemmtilegt en ég hef allaveganna komist að því að ég hef ekki brennandi ástríðu fyrir þessu. Jú ég held að mér finnist þetta alveg skemmtilegt.
Þetta mun verða tekið upp á DVD disk þannig að aðdáendur geta beðið mig um að sýna sér dýrðina eftir helgi. Segjum samt bara í júní þegar ég kem heim, ætla ekki að fara að setja þetta á netið-ónei, þar eru engin stefgjöld.
-Gerður

2 Athugasemdir:
Ég er að hugsa að skella mér á sýninguna hjá þér! Ekki má maður missa af þessu! HLakka til að sjá glysbúninginn,
kveðja,
Helen
Þetta verður magnað! Góða skemmtun :)
Sendu inn athugasemd
<< Veffang